• Vítahringur Margrétar Löf
    Feb 23 2026

    Langur aðdragandi var að því að Margrét Halla Hansdóttir Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum í Súlunesi í apríl 2025. Við meðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness teiknaðist upp djúpstæður fjölskylduvandi sem varð sífellt óviðráðanlegri. Vandi sem virtist hverfast um andlegt ástand Margrétar. Í þáttunum er rætt við Margréti, samferðafólk hennar og verjanda.


    Umsjón: Þóra Tómasdóttir

    Tæknimaður: Mark Eldred

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Show More Show Less
    56 mins
  • Kveikur: Börnin í Bakkakoti
    Feb 17 2026

    Samhliða umfjöllun Kveiks um bæinn Bakkakot fyrir tveimur vikum síðan, stigu níu menn fram sem kröfðust rannsóknar á ofbeldi sem þeir segjast hafa verið beittir þar sem börn. Í dag hefur tala þeirra meira en tvöfaldast.


    Í aðdraganda annars þáttar Kveiks um málið heyrum við viðbrögð eins viðmælanda þeirra við umfjölluninni, heyrum sögu manns sem var sóttur í Bakkakot af móður sinni eftir skamma en yfirþyrmandi dvöl, og ræðum við Jóhann Bjarna Kolbeinsson, fréttamann Kveiks, um dagskrárgerðina.


    Dagskrárgerð: Anna Marsibil Clausen

    Tæknimaður: Jón Þór Helgason

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Show More Show Less
    54 mins
  • Ráðgátan um horfna fiðluleikarann
    Feb 16 2026

    Írski fiðluleikarinn Sean Bradley hvarf sporlaust frá Íslandi 2018. Leit að honum hefur enn engan árangur borið. Þóra Tómasdóttir rekur atburðarásina og grunsemdir lögreglunnar á Suðurlandi.


    Þátturinn var upprunalega sendur út í nokkrum köflum í hlaðvarpinu Þetta helst.


    Umsjón: Þóra Tómasdóttir

    Tónlist: Philip Glass

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Show More Show Less
    43 mins