• Sætasta stelpan á ballinu
    Jun 2 2026

    Sandra Hlíf Ocares og Stein Olav Romslo, nýr borgarfulltrúi mættu til leiks. Nýr meirihluti og nýir borgarfulltrúar taka formlega við völdum í dag. Hver verður í hvaða hlutverkum? Hvernig mun samgöngusáttmáli þróast? Verður verkefnalisti.is vinsælasta heimasíða landsins? Hvað gerðist í Hafnarfirði og er betra að ráð bæjarstjóra en að hafa hann pólitískan?

    Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin.

    Show More Show Less
    1 hr and 7 mins
  • Korter yfir kosningar
    May 17 2026

    Hróðugur Maggi og tapsár Pétur fóru yfir málin.

    Sjálfstæðisflokkurinn með stórsigur út um allt land. Hvaða meirihlutar verða myndaðir? Hvaða mál verða tækluð strax? Hvað klikkaði hjá Samfylkingunni í Reykjavík? Hvað þýðir þessi niðurstaða fyrir stjórnmálalandslagið í heild?

    Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin.

    Show More Show Less
    57 mins
  • Hildur & Pétur
    May 14 2026

    Hildur Björnsdóttir og Pétur H. Marteinsson.

    Oddvitar stærstu flokkanna komu til okkar. Sammála um sumt, alls ekki allt. Hluti samgöngusáttmála þarfnast endurskoðunar að mati Hildar. Hvar byrjum við á leikskólamálunum? Pétur segir mörg mistök hafi verið gerð í núverandi meirihluta. Spennandi þáttur af Korter í kosningar, þeim síðasta korter í kosningar.

    Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin eru styrktaraðilar Korter í kosninga.

    Show More Show Less
    1 hr and 14 mins
  • Teppalögð Reykjavík
    May 12 2026

    Freyr Eyjólfsson og Áslaug Hulda Jónsdóttir mættu til okkar í upphafi kosningaviku og með sterkar skoðanir á öllu. Á Sjálfstæðisflokkurinn að auglýsa meira? Er Samfylkingin ekki að svara nógu miklu? Ætlar Viðreisn að starfa til hægri? Mun einhver starfa með Miðflokki? Er Einar Þorsteins í meðbyr? Er Flokkur fólksins að ofnota gervigreindina? Er Vinstrið búið að toppa?

    Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin eru samstarfsaðilar Korter í kosninga.


    Show More Show Less
    1 hr and 9 mins
  • Kosningaspámenn Íslands
    May 5 2026

    Bogi Ágústsson og Ólafur Þ. Harðarson - frægasta tvíeyki landsins síðan Halli og Laddi mættu í stúdíóið. Hver verður næsti borgarstjóri? Hvaða flokkar ná inn og hver græðir á því? Hversvegna má ekki telja atkvæði á meðan kjörstaðir eru ennþá opnir og af hverju geta þingmenn ekki bara breytt kosningalögum?

    Korter í kosningar verða í beinni 14. maí á Ölver. Miðasala á stubb.is.

    Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin eru samstarfsaðilar Korter í kosningar.

    Show More Show Less
    1 hr and 13 mins
  • 15 dagar í kosningar
    May 1 2026

    Svo margar spurningar í helgarþættinum. Halda Sósíalistar áfram að vinna oddvitakeppnina? Hver er stefna flokkana og fer hún saman við veruleikann? Hvaða flokkur er með besta slagorðið? Er að sjóða uppúr í Kópavogi? Vinnur Viðreisn til hægri í Reykjavík og vinstri í Kópavogi? Munu hálmstrá Framsóknar breyta einhverju? Hvað er þetta tígrisdýr sem allir eru að tala um? Er hægt að gervigreinda sig í gegnum kosningabaráttu og vinna?

    Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin eru samstarfsaðilar Korter í kosningar.


    Show More Show Less
    1 hr and 6 mins
  • Besta starf í heimi
    Apr 28 2026

    Það þurfti ekki að toga yfirlýsingarnar upp úr Gísla Marteini Baldurssyni og Svandísi Svavars í nýjasta þættinum en þau eru bæði fyrrverandi borgarfulltrúar.

    Um hvað snérist leynisamkomulagið í Moskvu? Er Gísli Marteinn með innirödd? Hvers vegna er Svandís ekki í Samfylkingunni og eiga kosningarnar að snúast um mannlíf og mannréttindi?

    Enor, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin styrkja Korter í kosningar.

    Show More Show Less
    1 hr and 4 mins
  • Ríða, drepa, giftast?
    Apr 21 2026

    Fyrrverandi borgarfulltrúinn Katrín Atladóttir, Katrín.is og Sorpuprinsinn Gunnar Dofri Ólafsson ræddu um regnboga, Guðmund Sæland, næsta borgarstjóra og hvort það verði tveir slíkir á næsta kjörtímabili.

    Enor, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin styðja við bakið á Korter í kosningar.

    Show More Show Less
    1 hr and 1 min