Episodes

  • #96 Skynsemi eða hræðsla? og "Wuthering Heights"(2026)
    Feb 16 2026

    Í þætti dagsins fer mikil orka í að reyna að kryfja af hverju Ragga finnst ekki gaman á skautum, við fáum uppfærslu úr þorrablótsfréttum og fræðumst um villt partí guðfræðinema.

    En mestu púðri verjum við í umfjöllun okkar um "Wuthering Heights" sem kom út fyrir skömmu með Margot Robbie og Jacob Elordi í aðalhlutverkum. En hér er á ferðinni ein erótísk mynd🔥 ... meira um það í þættinum.

    Show More Show Less
    56 mins
  • #95 Forsetapizzur, uppfærsla af þorrablóti og Shelter (2026)
    Feb 9 2026

    Í þætti dagsins fáum við fréttir af þorrablótum og ræðum ágæti Skímó og Hafdísar Huldar. Að lokum verjum við nokkrum mínútum í að ræða hina ekki svo skemmtilegu Shelter, nýjustu mynd Jason Statham.

    Show More Show Less
    55 mins
  • #94 Óþolandi Danir, bensínstöðvar og Send help (2026).mp3
    Feb 2 2026

    Í þætti dagsins ræðum við handboltafárið í janúar, hverfandi bensínstöðvar og komumst loks til botns í því hvernig valið er í Þorrablótsnefndir. En fyrst og síðast ræðum við hina stórskemmtilegu Send Help, nýjustu mynd Sam Raimi með þeim Rachel McAdams og Dylan O’Brien.

    Show More Show Less
    1 hr and 1 min
  • #93 Meira gott, meira nice, margt um Óskarinn og Marty Supreme (2025)
    Jan 26 2026

    Í þætti vikunnar ræðum við um þorrablót, bílaauglýsingar og auðvitað Óskarinn. Að lokum fjöllum við um kvikmyndina Marty Supreme með hjartaknúsaranum Timothée Chalamet.

    Show More Show Less
    1 hr and 7 mins
  • #92 TikTok Golden globes og 28 Years Later: The Bone Temple (2026)
    Jan 19 2026

    Í þætti dagsins ræðum við pólitíkusa sem eru farnir að láta á sér kræla á TikTok aftur, eftir að hafa legið í dvala frá síðustu Alþingiskosningum. Við ræðum söngva og gamanmyndina One Battle After Another og vegferð hennar á Golden Globe. Ásamt því að þáttastjórnendur fara á dýptina í samanburði á Laugarásbíó og Smárabíó.

    En fyrst og fremst ræðum við myndina 28 Years Later: The Bone Temple. Við bregðum aðeins út af vananum og hringjum í Kjartan Bíófíkill og ræðum við hann um þessa frábæru mynd.

    Show More Show Less
    1 hr and 12 mins
  • #91 Fimm reglur í ræktina og Greenland 2: Migration (2026)
    Jan 12 2026

    Í þætti dagsins þótti þáttastjórnendum mikilvægt að koma nokkrum óskrifuðum reglum um ræktarferðir á framfæri. Aðaláhersla þáttarins er þó á stórslysamyndina Greenland 2: Migration. Hér er nóg af hasar, sterkum tengingum við Ísland og almennt mikið af dramatík og spennu.

    Show More Show Less
    1 hr
  • #90 áramótaheit, skúrkar ársins og The Housemaid (2025)
    Jan 5 2026

    Í þætti dagsins ræðum við aðeins nýafstaðin áramót, áramótaheit og margt annað skemmtilegt. En að lokum fjöllum við um erótíska spennumyndina The Housemaid.

    Show More Show Less
    54 mins
  • #89 Topplistar, Völva, en fyrst og fremst Áramótabomba (2025)
    Dec 29 2025

    Í þessum þætti tökum við aðeins árið fyrir, ræðum við völvu um framtíð og nútíð og spjöllum bara almennt á léttu nótunum, hvað var það besta og versta sem við sáum á árinu 2025.

    Show More Show Less
    1 hr and 15 mins