RÁÐGÁTAN er nýtt hlaðvarp frá SPOR um klíníska rökleiðslu. Í hverjum þætti glíma þrír læknar við óþekkt sjúkratilfelli, byggja upp mismunagreiningu og reyna að komast á sporið og leysa ráðgátuna – skref fyrir skref.
Ung kona leggst inn með bólgusvörun og slæma verki í báðum síðum. Í fjórða þætti RÁÐGÁTUNNAR glímir hópurinn við tilfelli þar sem einföld rannsókn, sem kemur seint til sögunnar, breytir öllu.
🎙️ Þáttastjórnendur eru Berglind Bergmann, sérnámslæknir í lyflækningum, Teitur Ari Theodórsson, sérnámslæknir í lyflækningum, og Hildur Jónsdóttir, lyflæknir og kennslustjóri sérnáms í lyflækningum. Með þeim í hverjum þætti er gestalæknir sem að þessu sinni er Ólöf Ása Guðjónsdóttir, sérnámslæknir í lyflækningum.
RÁÐGÁTAN er hlaðvarp frá SPOR um klíníska rökleiðslu. RÁÐGÁTAN er ætluð til fræðslu og skemmtunar og kemur ekki í stað ráðgjafar læknis. Sjúkratilfelli eru gerð ópersónugreinanleg og einstökum atriðum kann að hafa verið breytt til að tryggja persónuvernd. Skoðanir sem koma fram í þættinum eru skoðanir þátttakenda og endurspegla ekki endilega afstöðu vinnustaða þeirra eða annarra stofnana.
Lagið heitir Viper's Drag er er frá 1934, samið af Thomas Wright Waller og flutt af Fats Waller.